Helgi Garðar Garðarsson
Kynning á kennaranum
Helgi Garðar er með sérfræðiréttindi í geðlækningum og barna- og unglingageðlækningum. Eftir sérnám í Danmörku starfaði hann um 15 ára skeið á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Á starfstíma sínum þar sinnti hann um 10 ára skeið ráðgjöf við meðferð ungmenna á sjúkrahúsinu Vogi. Helgi hefur einnig unnið við barna- og unglingageðlækningar í Noregi. Einnig var hann forstöðulæknir geðlækninga á Akureyri. Hann er jafnframt menntaður í jungískri sálkönnun.
